Látum okkur vera annt um loftið sem við öndum að okkur. RJ Verkfræðingar selja búnað og mælitæki sem tryggja hreint og heilsusamlegt loft.

Testo Saveris eftirlitskerfi f. hita-og rakastig
  • Testo saveris

     

     

    testo Saveris TM sjálfvirkt eftirlitskerfi  með hitastigi og rakastigi.

    Eftirlitskerfið testo Saveris mælir hitastig og rakastig viðkvæmra vara eða framleiðslu bæði í framleiðslunni eða á lager og í flutningum. Þetta kerfi er einfalt í notkun en tryggir að upplýsingar um hita- og rakastig eru sjálfvirkt skráðar og aðgengilegar. Gagnaflutningur er með þráðlausu neti eða Ethernet tengingu við grunnstöð ( base station) og eftirlit er með öllum mæligildum. Ef mæligildi eru utan leyfilegra marka eru aðvaranir gefnar út svo sem SMS/e-mail alarm eða rofi sem tengja má við ytri aðvörnarbúnað. Fjaraðvörun getur verið framkölluð án þess að kerfið er ekki tengt tölvu.

    Í flutningum er mæligildi skráð og bílstjóri fær alla upplýsingar og aðvaranir frá búnaði sem staðsettur er hjá honum. Skráning og eftirlit er framkvæmt með þráðlausum skynjurum sem auðvelt er að koma fyrir í flutningabílum. Ennfremur er unnt að prenta út mæligildi þegar varan er afhent. Öll skráð mæligildi hvort sem það eru mæligildi frá framleiðslu eða lager eða í flutningum eru geymd. Enn fremur bíður Saveris kerfið upp á greiningu og mat á öllum skráðum mæligildum. Með Saveris eru mæligögn og tryggilega geymd hvort sem þau eru gögn af lager eða í framleiðslu eða í flutningum á vörunni.